Við gerum ráð fyrir að spyrjandi vilji fræðast um útlit Guðs, hvort hann líti út eins og í einhverjum tilteknum bíómyndum. Um þetta vitum við ekki neitt enda vitum við ekki til þess að nokkur hafi séð Guð. Það er hins vegar hefð fyrir því að sýna Guð kristinna manna í mannsmynd enda segir í 1. Mósebók að Guð hafi ...
Útlitið sem menn hugsa sér á guðum sínum er með ýmsu móti. Okkur er tamt að hugsa okkur Óðin, Þór og Freyju í mannsmynd og hið sama gildir til dæmis um grísk-rómversku guðina Seif (Júpíter), Afródíte (Venus) og félaga þeirra. Af þeim síðarnefndu eru til frægar höggmyndir sem sýna þetta glöggt. Þessar myndir eru ef...
Spurningin felur í sér fullyrðingu: Að guð sé til. Um þetta eru auðvitað ekki allir sammála eins og fjallað er nánar um í svari Heiðu Maríu Sigurðardóttur við spurningunni Er guð til?
Ef gert er ráð fyrir að til séu æðri máttarvöld eru lýsingar á útliti þeirra æði misjafnar. Guðir margra trúarbragða líta út ei...
Orðið engill er af grískum uppruna og merkir sendiboði. Að kristnum skilningi eru englar sérstakir sendiboðar Guðs, settir okkur til verndar. Þeir eru ósýnilegir og ósnertanlegir. Margt fólk trúir því að englar séu stundum sendir með skilaboð og eru til reynslusögur frá fólki af því að engill hafi vitrast því, stu...
Altarið í kristinni kirkju er fyrst og fremst borð. Það er kallað borð Drottins vegna þess að þar er borin fram kvöldmáltíðin. Að ganga til altaris er þannig líka kallað að ganga til Guðs borðs.
Jafnframt er altarið samkvæmt kristinni trú tákn um nærveru Guðs á jörðu. Þess vegna snúum við okkur þangað þegar vi...
Biblía er grískt orð og þýðir „bækur”. Biblían telur líka margar bækur eða alls 66, og raunar 77 ef apókrýfar-bækur Gamla testamentisins eru taldar með. Þessar bækur eru frá mörgum mismunandi tímum og eru mjög fjölbreyttar að innihaldi. Kristnir menn skipta Biblíunni í tvo hluta, Gamla testamentið annars vegar og ...
Það hlýtur að felast í almætti Guðs, að hann geti hætt að vera almáttugur. Svo lengi sem hann nýtir sér ekki þann möguleika, telst hann almáttugur.
Þessari spurningu hefur einnig verið svarað frá heimspekilegu sjónarhorni, sjá svar Eyju Margrétar Brynjarsdóttur....
Nei, Gabríel er ekki fallinn engill, heldur engill miskunnarinnar og aðalsendiboði almættisins. Hann er jafnframt oft talinn foringi erkienglanna.
Heilög ritning segir ekki beinum orðum að Gabríel sé erkiengill, en það er hins vegar fullyrt í Enoksbók. Í hinni trúarlegu arfleifð er honum oft ruglað saman við M...
Þann 5. október 2007 var skipt um útlit á Vísindavefnum. Áður leit Vísindavefurinn út eins og sést hér á myndinni og hafði reyndar verið eins í öllum aðalatriðum frá því vefnum var hleypt af stokkunum 29. janúar árið 2000.
Svona leit Vísindavefurinn út fyrir útlitsbreytinguna í október.
Nýja útlitið er hanna...
Orðasambandið um úlfaldann og nálaraugað á rætur að rekja til Nýja testamentisins. Í samstofna guðsjöllunum Matteusarguðspjalli (19.24), Markúsarguðspjalli (10.25) og Lúkasarguðspjalli (18.25) stendur í biblíuútgáfunni frá 1981:Enn segi ég: Auðveldara er úlfalda að fara í gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn...
Í latnesku biblíuþýðingunni Vulgata, sem er meðal elstu og frægustu biblíuþýðinga, er síðari hluti englasöngsins á jólanóttina samkvæmt Lúkasarguðspjalli (2.14) svona: et in terra pax hominibus bonae voluntatis, sem þýðir orðrétt „og friður á jörðu til handa mönnum góðs vilja.“ Latneska textann hafa menn gjarna sk...
Vissulega var það fólkið sem ákvað að krossfesta Jesú. Fólkinu - eða öllu heldur leiðtogum þess - fannst Jesús óþægilegur svo að það yrði að ryðja honum úr vegi.
Krossfesting var andstyggileg pyntingaraðferð, ein af mörgum sem mannkynið hefur fundið upp í blóðugri sögu sinni. Í Rómaveldi var krossfestingu beit...
Að kristnum skilningi er heilagur andi andi Guðs og er uppruna hugtaksins heilagur andi að finna í Biblíunni. Í Gamla testamentinu er litið á anda Guðs eða heilagan anda sem mátt eða kraft frá Guði. Hann er nefndur í sköpunarsögunni: “Andi Guðs sveif yfir vötnunum" (1. Mósebók 1.2) og í einum Davíðssálmi segir: “F...
Hér er einnig svarað spurningunum:
Hvað er erkiengill? (Guðmunda Dagbjört)
Hverjir "eru" erkienglarnir (nöfn)? (Jóhanna Kristín)
Hverjir voru og hvaða hlutverk gegndu englarnir Michael og Gabríel? (Rúnar Sighvatsson)
Á engla er víða minnst í Biblíunni, eða ríflega 300 sinnum, og hafa þeir löngum verið snar...
María mey, einnig kölluð María guðsmóðir, var eftir því sem fram kemur í Lúkasar- og Matteusarguðspjöllum Nýja testamentisins móðir Jesú frá Nasaret, sem samkvæmt kristinni trú er sonur Guðs og sá messías sem Gamla testamentið spáði fyrir um að myndi frelsa mannkynið.
Í Biblíunni kemur hvergi fram nákvæmlega hv...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!